Dýragarðurinn
Í Dýragarðinum finnur þú fjölbreytt úrval af vörum fyrir gæludýrin þín – allt frá daglegum nauðsynjum til skemmtilegra fylgihluta sem gera lífið betra fyrir bæði dýrin og eigendur þeirra.
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, vandaðar vörur og hagstætt verð. Við höldum lager í hófi en pöntum reglulega inn og reynum þannig að bjóða sífellt fleiri spennandi vörur.
Hver er hundurinn í merkinu okkar? 🐾
Það er hún Ylfa, 15 ára labrador/border collie blendingur og sjálf fyrirmyndin að merki Dýragarðsins. Hún er því ekki bara fjölskyldumeðlimur heldur líka andlit fyrirtækisins!
Frí sending við kaup fyrir 15.000 kr. eða meira!
